ÝLIR - fréttabréf Landvarðafélags Íslands

Fréttabréf Landvarðafélagsins heitir Ýlir og kemur að jafnaði út nokkrum sinnum á ári.

Ýlir í hnotskurn

  • Fréttabréf Landvarðafélags Íslands kom fyrst út 1992.
  • Það hlaut síðan nafnið Ýlir eftir hugmyndasamkeppni nokkru síðar.
  • Ýlir kemur út þrisvar til fjórum sinnum á ári, en oftar ef þurfa þykir.
  • Í Ýli eru birtar tilkynningar um viðburði á vegum félagsins, upplýsingar um
    hagsmunamál félagsmanna og annað sem þarf að koma á framfæri.
  • Félagsmönnum er einnig velkomið að birta þar hugleiðingar sínar og skoðanir og halda þannig uppi umræðu um málefni landvarða og umhverfismál á breiðum grundvelli.
  • Ritnefnd slær aldrei hendi á móti hressilegum skoðanaskiptum og minnir á að án umræðu verða engar framfarir.
  • Núverandi ritnefnd skipa Hermann Valsson, Hrafnhildur Hannesdóttir og Jóhanna Katrín Þórhallsdóttir.
Eftirtalin tölublöð Ýlis eru aðgengileg hér á PDF-formi

Hafa samband

Hefur þú skoðun?

Láttu í þér heyra!

Athugasemdir

 

Hafir þú athugasemdir varðandi vefinn, eða vilt koma einhverju á framfæri við vefstjóra, vinsamlega sendu tölvupóst á netfangið

vefstjori@landverdir.is