Sjóðheit eldfjallaferð á Snæfellsnes!

Mánudagur, 03. maí 2010 21:50
Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Einkunn notenda: / 0
LélegGóð 

vatnsborgarhll1Kæru landverðir
Laugardaginn 8. maí ætlum við að fara í eldfjallaferð á Snæfellsnes. Leiðsögumaður okkar verður Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur, sem hefur varið starfævi sinni í að rannsaka eldfjöll um víða veröld, en hefur nú snúið á klakann á ný og stofnað Eldfjallasafnið á Snæfellsnesi. Þar sem ferðin verður löng, þá ætlum við að leggja af stað alveg eldsnemma, kl. 6 um morguninn úr Reykjavík. Gert er ráð fyrir að koma aftur til Reykjavíkur um kl. 20. Félagið mun greiða ferðina niður að hluta en fargjaldið verður að hámarki 4500 kr.

ATHUGIÐ AÐ SKRÁNINGARFRESTUR Í FERÐINA RENNUR ÚT MIÐVIKUDAGINN 5. MAÍ, endilega skráið ykkur sem allra  fyrst!!!

Skráning í ferðina sendist á Sigrúnu Sigurjónsdóttur, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , eða Ástu Rut  Hjartardóttur, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Kveðja, Landvarðafélagið

Hafa samband

Hefur þú skoðun?

Láttu í þér heyra!

Athugasemdir

 

Hafir þú athugasemdir varðandi vefinn, eða vilt koma einhverju á framfæri við vefstjóra, vinsamlega sendu tölvupóst á netfangið

vefstjori@landverdir.is